Upplestrarhátíð 4.bekkjar

Mánudaginn 9. mars héldu nemendur í 4.bekk glæsilega upplestarhátíð í Stykkishólmskirkju. Umsjónarkennari bekkjarins og nemendur skipulögðu dagskrána sem var hin skemmtilegasta og stigu nemendur stoltir á svið til að sýna afrakstur vinnu sinnar. 
Á dagskránni voru fjölbreytt atriði þar sem nemendur fluttu ljóð, texta og ýmis málfarsatriði af miklu öryggi og innlifun. Á milli dagskrárliða nutu gestir þess að hlusta á tónlistaratriði þar sem nemendur úr bekknum spiluðu á hljóðfæri. 
Markmið upplestrarhátíðarinnar er að efla lestur, framsögn og sjálfstraust nemenda í að koma fram fyrir áheyrendur. Það er óhætt að segja að nemendur hafi staðið sig með miklum sóma og sýnt bæði dugnað og metnað í undirbúningi sínum.
Allir stóðu sig einstaklega vel og eiga krakkarnir í 4.bekk sannarlega skilið stórt hrós fyrir frábæra og eftirminnilega dagskrá.