Innra mat

Innra mat er markviss leið skólans til að fylgjast með og meta gæði skólastarfsins. Með innra mati skoðum við hvernig nám, kennsla, líðan og skipulag styðja við nemendur, með það að markmiði að bæta stöðugt starf skólans og tryggja að hverju barni líði vel og fái viðeigandi stuðning.

Við skólann er starfandi gæðaráð sem skipuleggur framkvæmd innra mats. Áætlun liggur fyrir um hvaða matsþætti skal meta og svo er unnin ítarleg áætlun sem gildir fyrir hvert skólaár og hvaða leiðir skulu fara að framkvæmt matsins.
Gæðaráð skilar af sér skýrslu við lok hvers skólaárs um helstu viðfangsefni og stöðu hvers matsþáttar. 
Á skólaárinu 2025-2026 sitja stjórnendur í gæðaráði ásamt ráðgjafa frá Ásgarði skólaráðgjöf

Tilgangur innra mats er

  • að veita upplýsingar um skólastarf, árangur þess og þróun
  • að tryggja að starfsemi sé í samræmi við ákvæði laga, reglugerða og aðalnámskrár grunnskóla
  • að auka gæði náms og skólastarfs og stuðla að umbótum
  • að tryggja að réttindi nemenda séu virt og að þeir fái þá þjónustu sem þeir eiga rétt á samkvæmt lögum

Helstu verkefni 2025-2026
Stjórnun og fagleg forysta
Nám og kennsla
Innra mat