- Fréttir
- Þjónusta
- Myndir
- Íbúagátt
- Starfsfólk
- Viðburðir
- Fundargerðir
- Stagley
Prófin hafa þann tilgang að veita upplýsingar um stöðu og framvindu nemenda í námi og varpa ljósi á styrkleika þeirra og áskoranir.
Á skólaárinu 2025-2026 verða prófin lögð fyrir á tímabilinu 2.-27. mars fyrir nemendur í 4., 6. & 9.bekk.
Prófin eru lögð rafrænt fyrir og á skólatíma. Próftíminn er 80 mínútur.
Prófin krefjast ekki sérstaks undirbúnings en það er mikilvægt að hvetja börn til að gera eins vel og þau geta.
Á heimasíðu mms.is eru sýnispróf sem sniðin eru að aldri nemenda. Sýnisprófin eru ekki ætluð til þjálfunar í stærðfræði eða lesskilningi heldur til að kynnast stafrænu umhverfi prófanna.
Gert er ráð fyrir að allir nemendur sem fylgja árgangi í námi taki prófin. Skólastjóti getur sótt um undanþágu fyrir nemendur sem hafa ekki ávinning af því að taka prófin en það er alltaf gert í samráði við forsjáraðila.
Í prófunum er boðið upp á upplestur í stærðfræðiprófi, næði við próftöku eða próftöku í minni hópum fyri rþá nemendur sem þurfa meiri stuðning og hvatningu.
Það er ekki boðið upp á upplestur í lesskilningsprófi vegna þess að tilgangur prófsins erð að meta að hvaða marki nemendur geta nýtt sér lestrarfærni sína til að afla sér upplýsinga úr texta. Það þarf ekki að sækja sérstaklega um stuðningsúrræðin.