Farsæld barna

Farsæld barna.

 

Meginmarkmið Farsældarlaganna er að börn og foreldrar, sem á þurfa að halda, hafi aðgang að samþættri þjónustu við hæfi án hindrana. Samþætt þjónusta er skipulögð og samfelld þjónusta sem hefur það að markmiði að stuðla að farsæld barns og er veitt af þeim þjónustuveitendum sem eru best til þess fallnir að mæta þörfum barns hverju sinni. Farsæld barna felur í sér að tryggja aðstæður sem skapa barni skilyrði til að ná líkamlegum, sálrænum, vitsmunalegum, siðferðilegum og félagslegum þroska og heilsu á eigin forsendum til framtíðar samkvæmt nýrri löggjöf um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. Foreldrar og börn í Sveitafélaginu Stykkishólmi hafa aðgang að tengilið í skóla sveitarfélagsins.

 

Tengiliður skólans er: Ágústa S. Jónsdóttir

 

Tengiliður hefur hagsmuni barns að leiðarljósi í samstarfi og samráði við foreldra og barn.

 

Hlutverk tengiliðar er að:

 

Veita upplýsingar um þjónustu í þágu farsældar barns.

Aðstoða við að tryggja aðgang að frummati á þörfum barns.

Skipuleggja og fylgja eftir samþættingu fyrsta stigs þjónustu í þágu farsældar barns.

Koma upplýsingum til Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga um þörf fyrir tilnefningu málstjóra þjónustu í þágu farsældar barns.

Taka þátt í starfi stuðningsteymis eftir því sem við á.

 

 

Sjá nánar inn á https://www.farsaeldbarna.is/