
Stagley er úrræði innan stoðþjónustu Grunnskólans í Stykkishólmi þar sem lögð er áhersla á einstaklingsmiðað nám í jákvæðu og öruggu umhverfi. Þar fá nemendur tækifæri til að efla sjálfstæði, samskiptafærni, lausnaleit og sjálfstraust í gegnum fjölbreytt og hagnýt verkefni.
LEGO er mikilvægur þáttur í starfinu og er notað sem kennslutæki til að styðja við sköpun, samvinnu, skipulag og einbeitingu. Með því að byggja, hanna og leysa verkefni með LEGO læra nemendur á eigin forsendum og fá tækifæri til að nýta styrkleika sína í námi og leik.
Við í Stagley leggjum áhersla á:
• Sjálfstæði
• Sjálfstraust
• Samvinnu
• Jákvætt og öruggt námsumhverfi
Við trúum jafnframt á að allir geti tekið þátt og geti bætt sig! Áfram Stagley!