Laus störf

Kennari óskast í 80% starf

Grunnskólinn í Stykkishólmi óskar eftir kennara í 80% starf frá 1. nóvember 2026.

 

Um er að ræða kennarastöðu þar sem viðkomandi starfar með stoðþjónustuteymi skólans og sinnir fjölbreyttum og sértækum verkefnum innan stoðþjónustu. Starfið felur meðal annars í sér kennslu og stuðning við nemendur, þátttöku í skipulagi náms og úrræða og náið samstarf við kennara, annað starfsfólk og foreldra með það að markmiði að mæta ólíkum þörfum nemenda og styðja við nám, þátttöku og vellíðan þeirra.

Í skólanum er teymiskennsla, fjölbreyttir kennsluhættir og markviss vinna samkvæmt hugmyndafræði leiðsagnarnáms. Þar er lögð áhersla á virka þátttöku nemenda, skýr námsmarkmið og jákvæða og uppbyggilega endurgjöf, með það að markmiði að allir nemendur fái tækifæri til að ná árangri og vaxa í námi og félagsfærni.

Við leggjum áherslu á jákvæð samskipti, skapandi skólastarf og öflugt samstarf heimila og skóla.

Helstu verkefni

  • Kennsla og stuðningur við nemendur með fjölbreyttar náms- og stuðningsþarfir.
  • Þátttaka í sértækum verkefnum og úrræðum á vegum stoðþjónustu skólans.
  • Samstarf við stoðþjónustuteymi, umsjónar- og faggreinakennara og annað starfsfólk.
  • Þátttaka í skipulagningu, framkvæmd og eftirfylgd einstaklingsmiðaðra náms- og stuðningsúrræða.
  • Samstarf við foreldra og, eftir því sem við á, aðra fagaðila.
  • Virk þátttaka í faglegu starfi og lærdómssamfélagi skólans.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leyfisbréf til kennslu í grunnskóla.
  • Reynsla og/eða þekking á stoðþjónustu og vinnu með nemendum með fjölbreyttar náms- og stuðningsþarfir er æskileg.
  • Hæfni og áhugi á að vinna með börnum og ungmennum.
  • Góð samskipta- og samstarfshæfni.
  • Frumkvæði, sveigjanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Jákvætt viðhorf og vilji til þátttöku í faglegu samstarfi og þróunarstarfi skólans.

Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningum.

Umsókn skal fylgja leyfisbréf, yfirlit yfir nám og fyrri störf ásamt rökstuðningi fyrir hæfni umsækjanda til starfsins.

Við hvetjum áhugasama kennara sem vilja taka þátt í fjölbreyttu, faglegu og skapandi skólastarfi til að sækja um.