Heilbrigði og velferð er einn af grunnþáttunum í skólastarfi. Þar fléttast saman andleg-, líkamleg- og félagsleg vellíðan sem ræðst af samspili einstaklingsins, aðstæðna hans og umhverfis. Grunnskólinn leggur áherslu á heilbrigði og velferð nemenda og starfsfólks. Við gerð heilsustefnunnar var leitað til ýmissa aðila sem eru í samstarfi við grunnskólans eins og skólahjúkrunarfræðing, starfsmanna íþóttamiðstöðvar, foreldra, nemenda, kennara og annarra starfsmanna skólans. Verkefnið er á vegum Embættis landlæknis og er meginmarkmið stefnunnar að daglegt starf í skólanum stuðli að betri líðan og heilsu allra sem þar starfa.
Heildarstefnu heilsueflandi skóla má finna hér.