Skólasókn nemenda er mikilvægur þáttur í skólastarfi til að halda utan um raunmætingu nemenda í skólann.
Í upphafi hvers skólaárs hefja nemendur árið með fullnægjandi skólasókn. Seinkoma, fjarvist í kennslustund eða brottvikning telja allt til stigaskráningar. Leyfi og veikindi eru skráð í dögum en teljast ekki til einkunnar skólasóknar.
Tilgangur þess að vinna að reglum um ástundun nemenda er til að minnka óþarfa fjarvistir, skólaforðun og þá auknu tilhneigingu að minnkandi skólasókn sé samfélagslega samþykkt í formi fjölda leyfisdaga á skólatíma. Skólasókn nemenda er ávallt á ábyrgð foreldra og ber starfsfólki ekki skylda til að þjónusta einstaka nemendur sérstaklega vegna fjarvista frá skóla. Verum samstíga og vinnum að því að jafna stöðu nemenda með góðri skólasókn.
Skólasókn er skilgreind sem:
Viðunandi: Fjarvist í 9 daga eða færri.
Hættumerki: Fjarvist í 10-17 daga.
Langvarandi fjarvera: Fjarvist í 18+ daga.
Veikindi og leyfi eru talin í heilum dögum. Þetta á þó engöngu við þegar ekki liggja fyrir eðlilegar og viðeigandi skýringar á fjarvistum. Miðað er við 180 skóladaga á skólaári.
Hvað getur foreldri gert?
Ferli vegna stiga og daga v. veikinda/leyfa, seinkomu og fjarvista
