Skólahjúkrunarfræðingur

Skólaheilsugæsla

Heilsuvernd skólabarna í Grunnskólanum í Stykkishólmi er á vegum Heilsugæslu HVE Stykkishólmi.

Skólahjúkrunarfræðingur er Heiða María Elfarsdóttir og viðverutími eftirfarandi:

Þriðjudagar 8:00 - 14:00

Netfang skólahjúkrunarfræðings er: heida.elfarsdottir@hve.is

Heilsuvernd skólabarna er hluti af heilsugæslunni og framhald af ung- og smábarnavernd. Markmiðið er að efla heilbrigði nemenda og stuðla að vellíðan þeirra.
Starfsfólk heilsuverndar skólabarna vinnur í náinni samvinnu við foreldra, skólastjórnendur, kennara og aðra sem koma að málefnum nemenda með velferð þeirra að leiðarljósi. Farið er með allar upplýsingar sem trúnaðarmál. Þjónusta heilsuverndar skólabarna er skráð í rafræna sjúkraskrá heilsugæslunnar.
Helstu áherslur í heilsuvernd skólabarna eru forvarnir, fræðsla, skimanir og bólusetningar. Unnið er samkvæmt leiðbeiningum Þróunarmiðstöðvar íslenskrar heilsugæslu og Embættis landlæknis um heilsuvernd grunnskólabarna.

Miklar upplýsingar og fróðleik er að finna á heilsuvera.is

Heilbrigðisfræðsla

Skipulögð heilbrigðisfræðsla er veitt í öllum árgöngum og er áherslan á að hvetja til heilbrigðra lífshátta. Eftir fræðslu fá foreldrar upplýsingar í tölvupósti um fræðsluna. Þá gefst þeim kostur á að ræða við börnin um það sem þau lærðu og hvernig hægt er að nýta það í daglegu lífi.
Skipulögð fræðsla skólaheilsugæslu er eftirfarandi:

1. bekkur – ‚Líkaminn minn‘ - Forvörn gegn kynferðislegu ofbeldi og Hjálmanotkun

2. bekkur – Tilfinningar

3. bekkur – Verkefnabók um 6H heilsunnar (Hamingja, Hollusta, Hreinlæti, Hreyfing, Hvíld, Hugrekki)

4. bekkur – Kvíði og Slysavarnir

5. bekkur – Samskipti

6. bekkur – Kynþroski og Endurlífgun

7. bekkur – Endurlífgun og Bólusetning

8. bekkur – Líkamsímynd og Hugrekki

9. bekkur – Kynheilbrigði og Bólusetning

10. bekkur – Kynheilbrigði, Geðheilbrigði, Endurlífgun og Ábyrgð á eigin heilsu

Markmið hverrar fræðslu eftir árgöngum er hægt að sjá á heilsuvera.is

Skólahjúkrunarfræðingur gæti farið með auka fræðsluefni í árganga eftir þörfum.

Skimanir

Skimað er fyrir ákveðnum heilbrigðisvandamálum og eru skimanir framkvæmdar í 1., 4., 7. og 9. bekk. Þær felast í mælingu á hæð, þyngd og sjónskerpu. Nemendur í öðrum árgöngum eru skimaðir eftir þörfum.
Ef frávik reynist í skimun er ávallt haft samband við forráðamann.

Heilsueflandi viðtöl um lífsvenjur og líðan

Þegar skimanir fara fram í 1., 4., 7. og 9. bekk ræðir skólahjúkrunarfræðingur við nemendur um líðan og lífsvenjur. Markmið viðtalanna er að styrkja vitund nemenda um eigið heilbrigði og líðan. Einnig að geta gripið til úrræða ef vart verður við vanlíðan eða áhyggjur.

Bólusetningar

Bólusetningum er ætlað að verja einstaklinginn gegn alvarlegum smitsjúkdómum.

Í 7. bekk er bólusett við mislingum, hettusótt og rauðum hundum (ein sprauta), auk þess eru stúlkur bólusettar gegn HPV (Human papilloma veirum) sem geta valdið leghálskrabbameini. HPV bólusetning er gefin tvisvar með 6 mánaða millibili.

Í 9. Bekk er bólusett við barnaveiki, stífkrampa, kíghósta og mænusótt (ein sprauta).

Áður en kemur að bólusetningu er sendur tölvupóstur til foreldra með upplýsingum um tímasetningu. Gott er að nemendur komi með bólusetningarskírteini sín í skólann þegar bólusetning fer fram.

Hafið samband við skólahjúkrunarfræðing ef:

  • Nánari upplýsinga eða fróðleiks er óskað.
  • Talið er að barn sé ekki að fullu bólusett.
  • Óskað er eftir því að barn sé ekki bólusett, það er á ábyrgð foreldra að láta bólusetja börn sín.
  • Einhverjar áhyggjur vakna varðandi líðan og/eða heilbrigði barns.