Árshátíð 1.-6. bekkjar verður haldin mánudaginn 23. mars í kirkjunni. Bekkirnir munu setja upp stutta leikþætti og fjölskyldum er boðið á sýninguna líkt og verið hefur. Þar sem það er takmarkað sætaframboð þá óskum við eftir því að með hverjum nemanda fylgi einungis nánustu fjölskyldumeðlimir.
Árshátíðin hefst kl 17:00 og stendur í um það bil klukkutíma. Að henni lokinni verður haldið ball í tónlistarskólanum.
Greitt er við inngang með millifærslu.
Við vonum að þið takið daginn frá og við sjáum ykkur sem flest.
Árshátíð 7.-10. bekkjar fer fram fimmtudaginn 26. mars í sal tónlistarskólans.
Árshátíðarvikuna verður fjölbreytt dagskrá í boði nemendaráðs eins og kappát, Amasing, Race, íþróttamót og bingó og hver dagur er með sitt þema og nemendur hvattir til þess að mæta í stíl við þemað.
Nemendaráð skólans skipuleggur dagskrá árshátíðar vikunnar og árshátíðarkvöldið með aðstoð kennara og stjórnenda og má búast við glæsilegu kvöldi. Þemað í ár er svart, hvítt og gull.
Látum okkur hlakka til.