Heimasíða útikennslu komin í loftið

Hvern föstudag fer einn árgangur (1. -4.bekkur) í fjögurra kennslustunda útikennslu, alveg sama hvernig viðrar. Farinn er leiðangur innan bæjarmarkanna; skógurinn í Nýrækt heimsóttur, farið í nálæga fjöru, skundað um bæinn eða litið inn á safn. Í útikennslu tímunum er mjög mikilvægt að vera vel nestaður því nestisstundin skipar stóran sess í hverri ferð. 
Ásdís útikennslukennari, hefur með elju og þrautseigju haldið á lofti mikilvægi útikennslu og kynnt nemendum fjölbreyttum og áhugaverð verkefni í hverri ferð. Ásdís hefur tekið saman verkefni bekkjanna, myndir og þau hæfniviðmið sem unnið er með og sett upp glæsilega upplýsingasíðu um útikennslu í skólanum.
Verkefnið var valið eitt af áhugaverðum skólaþróunarverkefnum á UTÍS online 2024.

Til að skoða heimasíðuna smellið há hlekkinn.
ÚTIKENNSLA