Göngum í skólann

Nú í upphafi nýs skólaárs stendur ÍSÍ fyrir átakinu göngum í skólann.

Árlega taka milljónir barna frá yfir 40 löndum víðs vegar um heiminn þátt í Göngum í skólann með einum eða öðrum hætti.

Á vefsíðu Göngum í skólann er að finna helstu upplýsingar um verkefnið. Vefsíða Göngum í skólann er gongumiskolann.is

Markmið verkefnisins eru að hvetja börn til að tileinka sér virkan ferðamáta í og úr skóla og auka færni þeirra til að ferðast á öruggan hátt í umferðinni. Ein einfaldasta leiðin til að auka hreyfingu í daglegu lífi er að velja virkan ferðamáta, svo sem göngu, hjólreiðar, hlaup, línuskauta eða hjólabretti. Ávinningurinn er ekki aðeins bundinn við andlega og líkamlega vellíðan heldur er þetta einnig umhverfisvæn og hagkvæm leið til að komast á milli staða.

Þeir foreldrar sem tök hafa á hvattir til að ganga í skólann firstu dagana og kenna um leið börnum sínum að koma gangandi.

Hvetjum foreldra til að fari yfir helstu umferðarmerki og -reglur með börnum sínum. T.d.við stoppum horfum hlustum og erum að fræða á göngubrautum við notum gangstéttar og fylgjum umferðareglum. Mikilvægt að fara ekki yfir fyrr en bílar stöðva alveg. Notum endurskinsmerki þegar fer að rökkva.

Minnum nemendur og íbúa að nota hjálma þar sem það á við.

Minnum ökumenn að sýna tillitsemi og varkárni í umferðinni.