Fjölskyldufjör í fjöruferð

Sunnudaginn 15. september býður þjóðgarðurinnSnæfellsjökull, í samvinnu við Vör sjávarrannsóknarsetur, Hafrannsóknarstofnunog Svæðisgarðinn Snæfellsnes, í fjöruferð á Malarrifi.

Um er að ræða fjölskylduvæna skemmtun ogfræðslu í tilefni af degi íslenskrar náttúru þann 16. september og Strandmenningarhátíðará Snæfellsnesi. Eru forvitnir krakkar á öllum aldri og forráðamenn hvattir tilað mæta.

Hvað finnum við í fjörunni? Er eitthvað aðfinna undir steinunum? Hvernig skyldu trjádrumbarnir í fjörunni komast þangað,er eitthvað gert við þá? Hvað finnum við í Salthúsinu? 

Mæting við gestastofnuna á Malarrifi næstkomandi sunnudag kl. 13:00og gert ráð fyrir að dagskrá ljúki kl. 15:00. Verið klædd eftir veðri og ekkiverra að vera í stígvélum.