Vorskólinn

Síðustu daga þá hafa elstu nemendur leikskólans verið hjá okkur í vorskóla. Ellen og Rósa sem eru umsjónarkennarar 1.bekkjar tóku á móti leikskóla nemendum og kynntu fyrir þeim allt það helst sem þau munu takast á við hjá okkur á næsta skólaári. Það var ekki annað að sjá en að nemendur vorskólans voru alsælir og spenntir fyrir fjölbreyttri dagskrá.

Fljótlega verður tilkynnt hvaða umsjónarkennari mun taka við hópnum í haust.