Vöfflukaffi útskriftarnema

Í dag bökuðum við vöfflur og buðum útskriftar nemendum skólans í vöfflu"kaffi" á kaffistofu starfsmanna. 
Útskriftarhópur skólans þetta skólaárið telur 19 nemendur og því var þétt setið á kaffistofunni á meðan nemendur og starfsmenn gæddu sér á dýrindis vöfflum og spjölluðu saman um allt milli himins og jarðar. 

Útskrift mun svo fara fram þann 05.júní í Stykkishólmskirkju.