Ragnar hefur gegnt hlutverkinu um nokkurt skeið og þekkir því vel til skólastarfsins, starfsfólksins og þeirra verkefna sem fram undan eru. Við fögnum því að hann haldi áfram í þessu mikilvæga hlutverki og verði áfram hluti af stjórnendateymi skólans.
Sigríður Silja hefur látið af störfum sem aðstoðarskólastjóri og mun hér eftir sinna fjölbreyttum verkefnum á sviði upplýsingatækni og stafrænnar þróunar skólastarfsins.
Þar verður áfram unnið að þróun stafræns skólastarfs með áherslu á að nýta tæknina á markvissan hátt til að styðja við kennslu og nám. Um leið verður áfram lögð rík áhersla á fjölbreyttar kennsluaðferðir þar sem bækur, blýantur, samvinna og stafræn verkfæri vinna saman að sem bestu námi nemenda.
Stjórnendateymið hlakkar til að taka á móti nemendum og starfsfólki þegar skólastarf hefst og hlakkar til áframhaldandi góðs samstarfs við allt skólasamfélagið.