Læsisteymi skólans blés til smásagnasamkeppni eftir páskafrí og var skilafrestur á sögum til 24. apríl.
Í dómnefnd voru Ólafur K Ólafsson og Lára Gunnarsdóttir sem lásu sögur nemenda á yngsta stigi og fyrrum nemendur skólans þær Thelma Lind og Halldóra sem lásu sögur nemenda á mið- og elsta stigi. Við þökkum þeim kærlega fyrir að aðstoða okkur við að lesa allar skemmtilegu sögurnar sem bárust í keppnina.
Í dag voru veitt fjögur verðlaun fyrir bestu sögurnar.
Verðlaunasaga 1. og 2. bekkjar var Sagan um Sif eftir Gígju Maríu Jónsdóttur (2.b)
Verðlaunasaga 3. og 4. bekkjar var Týnda sverðið eftir Nínu Elsu Markvoll (4.b)
Verðlaunasaga 5. - 7. bekkjar var Afi Eggert og dáleiðslan eftir Emilíönu Káradóttur (6.b)
Verðlaunsaga 8. - 10. bekkjar var Sæti strákurinn eftir Birnu Maren Dagsdóttur (8.b)
Til hamingju með frábærar sögur og höldum áfram að vera dugleg að skrifa allskonar sögur, stuttar og langar og alvarlegar og fyndnar og ævintýri og bara allskonar.



