Skólasóknareglur

Foreldrar bera ábyrgð á að barn þeirra sæki skóla reglulega. Jafnframt bera þeir ábyrgð á námi barnsins og að fylgjast með námsframvindu þess í samstarfi við barnið sjálft og kennara. Skólinn fer eftir ákveðnu verklagi þegar misbrestur verður á skólasókn barns í grunnskóla. Verklagið tekur til fjarveru vegna seinkoma, fjarvista, veikinda og leyfa. Verklagið tekur mið af lögum um farsæld barna og stigskiptum stuðningi og felur í sér virkt samstarf heimilis og skóla til að mæta þörfum barns.

Viðmið um skólasókn og útreikninga á fjarvistarstigum má sjá hér