Skólaslit og útskrift 

Föstudaginn 5. júní voru skólaslit Grunnskólans í Stykkishólmi haldin með hátíðlegum hætti. Að þessu sinni voru skólaslitin þrískipt þar sem nemendur á yngsta stigi, miðstigi og unglingastigi komu saman ásamt fjölskyldum sínum og starfsfólki til að fagna lokum skólaársins.

Í ávörpum dagsins var farið yfir skólaárið sem nú er að baki og minnt á að það sem situr oft sterkast eftir úr skólagöngunni eru ekki endilega verkefnin, prófin eða námsmatið heldur vináttan, samveran, hláturinn og allar þær minningar sem verða til í daglegu skólastarfi.

Nemendum var hrósað fyrir dugnað, seiglu og framfarir á árinu og sérstaklega fyrir það hvernig þeir hafa lagt sitt af mörkum til að skapa jákvætt og öflugt skólasamfélag. Einnig var horft til næsta skólaárs þar sem áfram verður lögð áhersla á góða vináttu, jákvæð samskipti og lestur.

Á skólaslitum yngsta stigs var Alberti Kárasyni, nemanda 1.bekkjar veitt viðurkenning fyrir að vera Umhverfishetja GSS, en Albert hefur verið duglegur við það að hreinsa dót og drasl af skólalóðinni þegar hann er í frímínútum eða í starfi Regnbogalands.
Á skólaslitum á miðstigi var Wojciech Ryszard Kowalski, nemanda 7.bekkjar veitt viðurkenning fyrir að vera Brúarsmiður GSS. Wojciech hefur með hlýju, hjálpsemi og jákvæðu viðmóti tekið á móti nýjum nemendum og lagt sitt af mörkum til að öllum líði vel. Wojciech hefur sýnt það á skólaárinu að góð vinátta, virðin og umhyggja geta byggt brýr á milli fólks. 

Við skólaslit á unglingastigi var útskrift 10. bekkjar að venju hápunktur dagsins. Útskriftarnemendur tóku við vitnisburði sínum og kvöddu grunnskólann eftir tíu ára skólagöngu. Við athöfnina voru einnig veittar viðurkenningar fyrir framúrskarandi námsárangur, hvatningarverðlaun og þakklætisvottir fyrir framlag til félagsstarfa og þróunarverkefna innan skólans.
Þorvarður Daníel og Hóseas Haukur fengu þakklætisvott fyrir að leggja sitt af mörkum í að efla félagslíf skólans.
Gergö Petö fékk Hvatningarverðlaun skólaársins, en Gergö hefur sýnt að með þrautseigju, jákvæðu viðhorfi og vilja til að takast á við nýjar áskoranir er hægt að ná langt.
Viðurkenningu fyrir framúrskarandi námsárangur hlaut Hugrún María Hólmgeirsdóttir sem hefur náð markmiðum með vinnusemi, metnaði, seiglu og jákvæðu viðhorfi.
Heiðar Már, Kristófer Dean og Víkingur Leó fengu þakklætisvott fyrir að hafa komið að þróun verkefnisins Stagley með frumkvæði. Verkefnin í Stagley hafa vakið verðskuldaða athygli enda hefur sköpunarkrafturinn og frumkvæði strákanna verið til fyrirmyndar. 

Tónlist skipaði veglegan sess í athöfninni og var sérstaklega ánægjulegt að útskriftarnemendur skyldu sjálfir sjá um tónlistarflutning bæði í upphafi og lok athafnarinnar.
Gergö Petó spilaði orgelverk 
Brynja og Sesselja fluttu frumsamið lag á píanó og Klarínett
Kristbjörg María söng 

Fyrir hönd útskriftarnema fóru Hugrún og Sesselja yfir grunnskólaárin þeirra tíu. 
Útskriftarnemum ásamt foreldrum/forsjáraðilum, systkinum, ömmum og öfum var svo boðið upp á köku og kaffi í tilefni dagsin.

 

Að lokum viljum við þakka nemendum, foreldrum og starfsfólki fyrir farsælt samstarf á skólaárinu. Við kveðjum útskriftarnemendur með þakklæti og stolti og óskum þeim velfarnaðar á nýjum vettvangi.

Við óskum öllum nemendum, fjölskyldum þeirra og starfsfólki gleðilegs sumars og hlökkum til að hittast á ný þegar skólastarf hefst á haustdögum.