Skólasetning og upphaf nýs skólaárs

Í dag var nýtt skólaár formlega sett við Grunnskólann í Stykkishólmi. Nemendur, foreldrar og starfsfólk komu saman til að fagna upphafi skólaársins og ríkjandi var mikil tilhlökkun og gleði yfir því að hittast á ný.

Í ávarpi skólastjóra var lögð áhersla á að skólinn væri samfélag þar sem allir skipta máli. Nemendur voru hvattir til að mæta til leiks af hugrekki, leggja sig fram, prófa nýjar leiðir og muna að mistök eru eðlilegur hluti af námi og framförum. Það er ekki ætlast til þess að allir geti allt strax, heldur að allir sýni vilja til að læra, þroskast og gera sitt besta.

Jafnframt var rætt um mikilvægi ábyrgðar og sjálfstæðis. Hver og einn hefur hlutverk í því að skapa jákvætt og öruggt skólasamfélag þar sem virðing, samvinna og hjálpsemi eru höfð að leiðarljósi. Með því að styðja hvert annað og leggja sitt af mörkum getum við öll átt þátt í að gera skólann að góðum stað til að læra og starfa.

Nemendur í 1.bekk fengu það mikilvæga hlutver að gæta töfralykilsins en töfralykilinn táknar þau ótal tækifæri sem nýtt skólaár færir með sér, til að vaxa, eignast vini og skapa góðar skólaminningar. 

Starfsfólk skólans hlakkar til að vinna með nemendum og foreldrum á komandi skólaári. Við trúum því að góð samskipti, gagnkvæmt traust og öflugt samstarf heimilis og skóla séu lykillinn að farsælli skólagöngu barna.

Við óskum öllum nemendum, foreldrum og starfsfólki innilega til hamingju með upphaf nýs skólaárs og hlökkum til að takast saman á við spennandi verkefni, ný tækifæri og skemmtilega viðburði á komandi mánuðum.