Regnbogaland - Skráning

Við biðjum þá foreldra sem eiga eftir að ganga frá umsóknum barna sinna fyrir veturinn að gera það sem allra fyrst. Skráningin er nauðsynleg til þess að við getum skipulagt starfið og mannað Regnbogaland.
Frístundatíminn er dýrmætur fyrir börnin og markmið okkar er alltaf að bjóða öllum börnum pláss. Nú stendur yfir vinna við að ráða inn starfsfólk fyrir veturinn og munu því hluti barna í 2. og 3.bekk vera á biðlista þangað til verður fullmanna hjá okkur. 
Skráning í frístund: https://fristund.vala.is/umsokn/#/login


Allar upplýsingar um starfið veitir Sunna Rós í síma 833-6473 eða í gegnum netfangið regnbogaland@stykk.is