LITAHLAUP

Þema á fyrsta uppbrotsdegi skólaársins er Norræna skólahlaupið og í ár ætlum við að gera daginn litríkan og hafa LITAHLAUP. 
Hlaupið verður með svipuðu sniði og áður. Hringurinn er 1,6 km og á leiðinni verða 4-5 litastöðvar þar sem litadufti verður kastað yfir nemendur. Allir nemendur hafa val um að fara einn eða fleiri hringi, hvort sem þau kjósa að ganga, skokka eða hlaupa. 

Við hvetjum öll til að mæta í hvítum bolum svo að litirnir njóti sín sem best. Litaduftið á að nást úr þvotti.
Mikilvægt er að bæta með hlífðargleraugu, t.d. flugeldagleraugu eða sólgleraugu svo að litaduftið fari ekki í augun. 
Að loknu hlaupi verður rnemendum boðið upp á hádegishressingu.

Við þökkum foreldrafélaginu fyrir litríkan og veglegan styrk fyrir hlaupinu.