Læsir verður hluti af heimalestri nemenda við GSS

Frá og með komandi skólaári mun Grunnskólinn í Stykkishólmi nota Læsir til að halda utan um heimalestur nemenda á öllum skólastigum.

Læsir er einfalt og notendavænt rafrænt kerfi sem auðveldar bæði heimilum og skólanum að fylgjast með heimalestri. Markmið með innleiðingunni er að styrkja samstarf heimilis og skóla um lestur og gera skráningu á heimalestri einfaldari og skilvirkari.
Forritið hefur verið tekið í notkun í fjölmörgum grunnskólum eða um 79 skólum um land allt hefur reynst vel sem verkfæri til að styðja við reglulegan heimalestur og efla samstarf heimilis og skóla um lestur.

Helstu kostir Læsis eru meðal annars:

  • Einföld og fljótleg skráning á heimalestri.

  • Foreldrar og forsjáraðilar geta auðveldlega fylgst með lestrinum.

  • Umsjónarkennarar hafa góða yfirsýn yfir skráningar og geta betur stutt við lestrarvenjur nemenda.

  • Kerfið styður við reglulegan lestur og hjálpar til við að byggja upp góðar og varanlegar lestrarvenjur.

Á heimasíðu Læsir má finna frekari upplýsingar um Læsi, leiðbeiningar um notkun og svör við helstu spurningum.

Þegar skólastarf hefst munu umsjónarkennarar senda foreldrum og forsjáraðilum aðgangskóða svo hægt verði að skrá sig inn og hefja notkun.

Reglulegur lestur er einn mikilvægasti þátturinn í námsframvindu barna. Með Læsi viljum við gera samstarf heimilis og skóla enn markvissara og auðveldara, þannig að saman getum við stutt við jákvæða lestrarvenju allra nemenda.