Nemendur i 3. og 4. bekk tóku þátt í hugmyndasamkeppni Evolytes fjölskyldan mín.
Samkvæmt tilkynningu frá Evolytes teyminu þá fóru viðtökur langt fram úr þeirra björtustu vonum og átti dómnefnd virkilega erfitt með að velja sigurvegara. Ákveðið var að verðlauna fyrir 10 bestu hugmyndirnar.
Kristín Ósk Sigurðardóttir nemandi í 3.bekk átti eina af 10 bestu hugmyndunum og óskum við henni hjartanlega til hamingju.
Kristín Ósk ætlar að fara ásamt foreldrum sínum á verðlaunaafhendinguna sem mun fara fram föstudaginn 22.maí í Smáralind
Evolytes er námskerfi í stærðfræði þar sem nemendur læra stærðfræði í gegnum leik og ævintýraheima.
Allar upplýsingar um Evolytes má finna á heimasíðunni Evolytes