Hjólastrætó GSS lagði af stað frá Hjallatanganum og voru fyrstu farþegarnir mættir vel fyrir brottför.
Björg og Rebekka eiga heiðurinn af framkvæmdinni og skipulaginu og þökkum við þeim kærlega fyrir geggjaðan og stuðmikinn hjólatúr.
Stór hópur nemenda hjólaði um götur bæjarins undir takfastri tónlist og fyrir hópnum fór Steinunn Alva kennari og lögreglukona, svo að allir væru á löglegum hraða.
Það urðu engin stórslys en nokkrir árekstrar en allir komust heilir á leiðarenda og svo fengu allir sér ávexti og vatn áður en haldið var í tíma.
Það var gaman að sjá hversu margir foreldrar mættu og hjóluðu með hópnum og voru tilbúnir til þess að stökkva til og aðstoða.
Hver veit nema að hjólastuðstrætó GSS muni fara aftur um götu bæjarins.