Skóladagurinn er hins vegar fyrst og fremst skipulagður fyrir nemendur skólans og heimsóknir geta, þótt vel meintar séu, haft truflandi áhrif á nám og starf hópa. Þá þarf skólinn ávallt að hafa skýra yfirsýn yfir þau börn sem dvelja í skólanum og tryggja að ábyrgð, öryggi og nauðsynlegar upplýsingar séu í lagi.
Af þeim sökum höfum við sett okkur verkferla um heimsóknir barna í GSS. Meðfylgjandi verkferlar eru vinnureglur starfsfólks og biðjum við foreldra og forsjáraðila um að virða þær og hafa samband við skólann áður en heimsókn er ráðgerð.
Verkferla má finna hér á heimasíðu skólans undir - skólinn, áætlanir og stefnur - Heimsóknir barna í GSS
Smellið hér til að kynna ykkur verferla: Heimsóknir barna í GSS
Að sjálfsögðu geta komið upp aðstæður þar sem ástæða er til að víkja frá almennu verklagi, meðal annars þegar aðstæður barns eða velferð kalla á það. Slík mál eru metin sérstaklega hverju sinni.