Á dögunum fóru nemendur 4.bekkjar ásamt Örnu Dögg umsjónarkennara og Ezster stuðningsfulltrúa í heimsókn í Ráðhúsið. Starfsfólk Ráðhússins tók vel á móti hópnum og fengu krakkarnir að heimsækja skrifstofu bæjarstjóra og nota fundaraðstöðu Ráðhússins. Nemendur báru fram óskir sínar um hvað þau telja að þurfi að bæta í skólanum.
Að mati nemenda 4.bekkjar þá þarf að taka til hendinni á skólalóðinni, í mötuneytinu, setja nýjar frímó reglur og svo eitt og annað er tengist skipulagi skólans.
Þóra Magga og Ragnar heimsóttu 4.b í vikunni og fengu kynningu á þeim atriðum sem 4.bekkur fór yfir með Jakobi bæjarstjóra. Bekkurinn var ánægður að heyra að nýbúið er að funda um skólalóðina og næstu skref og að það sé verið að skoða mötuneytið og matseðla. Þóra Magga og Ragnar munu svo skoða vel skipulag varðandi raðir í matsalinn og frímínútnatíma bekkja í skipulaginu fyrir næsta skólaár.
Skólalóð
Mötuneyti
Skólinn
Reglur