Haustfundir - saman leggjum við grunn að góðu skólaári

Á fyrstu vikum skólaársins eru haustfundir foreldra og forsjáraðila mikilvægur hluti af samstarfi heimila og skóla. Markmið þeirra er að gefa góða innsýn í skólastarf vetrarins, skýra áherslur og væntingar og leggja sameiginlegan grunn að góðu samstarfi yfir skólaárið.

Sérstakir haustfundir í 1., 5. og 8. bekk
Foreldrar og forsjáraðilar nemenda í 1., 5. og 8. bekk verða sérstaklega boðaðir til haustfundar. Á þessum tímamótum eru nemendur að færast á milli skólastiga og taka við nýjum verkefnum, breyttu skipulagi og auknum væntingum. Því viljum við gefa foreldrum gott tækifæri til að kynnast starfinu, fá upplýsingar um það sem fram undan er og ræða það sem einkennir viðkomandi skólastig.

Umsjónarkennarar annarra árganga munu annaðhvort boða foreldra og forsjáraðila til haustfundar eða senda ítarlegar upplýsingar heim um skólastarf vetrarins.

Á haustfundum verður meðal annars fjallað um starf og skipulag árgangsins, áherslur skólaársins, námsvísa og kennsluáætlanir, námslotur, leiðsagnarnám og námsmat. Einnig verður rætt um ábyrgð og sjálfstæði nemenda, lestur og heimanám, líðan, samskipti og bekkjaranda.
Foreldrar fá jafnframt upplýsingar um stoðþjónustu skólans, skimanir og sérfræðiþjónustu, auk þess sem farið verður yfir samskipti heimila og skóla og tilgang nemenda- og foreldrasamtala skólaársins.

Mikilvægt að hvert heimili eigi fulltrúa
Gott samstarf heimila og skóla skiptir miklu máli fyrir nám, líðan og farsæla skólagöngu nemenda. Haustfundurinn er því ekki aðeins upplýsingafundur heldur tækifæri til að skapa sameiginlegan skilning, skýra væntingar og efla samstarfið strax í upphafi skólaárs.
Við leggjum því ríka áherslu á að að minnsta kosti eitt foreldri eða forsjáraðili frá hverju heimili mæti þegar boðað er til haustfundar.
Umsjónarkennarar senda nánari upplýsingar um fyrirkomulag og tímasetningu funda til foreldra og forsjáraðila.

Við hlökkum til samstarfsins í vetur, saman sköpum við góðar aðstæður fyrir nám, vellíðan og framfarir nemenda.