Undanfarnar tvær vikur hafa GSS-leikar skólans staðið yfir. Nemendur í 1.–10. bekk tóku þátt en hverjum bekk var skipt upp í fjögur lið sem öll fengu að velja sér eigið liðsheiti. Sköpunargleðin lét ekki á sér standa og mátti þar sjá nöfn á borð við Íslandsmeistara, Svörtu selina, Apakettina fjóra, Kaffibaunirnar, Letidýrin, Bleiku pardusana – og margt fleira skemmtilegt.
Keppnin fór fram í þremur óhefðbundnum íþróttagreinum: skotbolta (e. Dodgeball), boðhlaupi og þrautabraut (e. Floor is lava). Verkefnið gekk afar vel og nemendur stóðu sig frábærlega í alla staði.
GSS-leikarnir voru haldnir í fyrsta sinn og því um ákveðna frumraun að ræða. Markmið leikanna er að efla liðsheild innan bekkja, auka þátttöku allra nemenda, samvinnu og skapa jákvæða upplifun af hreyfingu og samveru. Þá er einnig lögð áhersla á að nemendur fái tækifæri til að prófa fjölbreytta og skemmtilega hreyfingu utan hefðbundinna íþróttagreina.
Við íþróttakennarar erum afar ánægðar með hvernig til tókst og sjáum fyrir okkur að GSS-leikarnir verði árlegur viðburður sem muni vaxa og dafna sem fastur liður í skólastarfinu.
Sigurvegarar í 1.–4. bekk fengu sundlaugarpartý fyrir sig og bekkinn, auk CapriSun safa í verðlaun.
Sigurvegarar í 5.–7. bekk fá sameiginlegt sundlaugarpartý fyrir alla þrjá bekkina, auk páskaeggja.
Sigurvegarar í 8.–10. bekk fá gjafabréf að launum.
Við viljum þakka öllum nemendum kærlega fyrir frábæra þátttöku og jákvætt viðmót. Einnig færum við Bónus og Nesbrauði sérstakar þakkir fyrir stuðninginn – það er dýrmætt að finna fyrir samstöðu og velvilja í samfélaginu.
Anna Soffía, María, Rebekka og Sigga

