Niðurstöður Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar 2026 gefa góða mynd af líðan, skólagöngu og þátttöku nemenda í Grunnskólanum í Stykkishólmi. Niðurstöðurnar sýna að nemendum líður almennt mjög vel í skólanum, þeir upplifa sterka tilfinningu fyrir því að tilheyra skólasamfélaginu og langflestir telja mikilvægt að leggja sig fram í námi. Jafnframt upplifa sífellt fleiri nemendur að þeir geti leitað til fullorðinna í skólanum ef á þarf að halda. Þessar niðurstöður eru okkur bæði ánægjuefni og hvatning til að halda áfram að byggja upp jákvæða og örugga skólamenningu.
Rannsóknin staðfestir jafnframt að þátttaka barna í skipulögðu tómstundastarfi er áfram góð. Um leið gefa niðurstöðurnar tilefni til að fylgjast áfram með þróun reglulegrar þátttöku, bæði í íþróttum og listastarfi, sérstaklega meðal eldri nemenda. Virk þátttaka í tómstundum er mikilvægur verndandi þáttur fyrir líðan, félagsfærni og farsæld barna og því viljum við áfram styðja við fjölbreytt tækifæri til þátttöku.
Það sem vekur sérstaka athygli er að þær áskoranir sem rannsóknin dregur fram eru í góðu samræmi við þær niðurstöður sem áður hafa komið fram í Skólapúlsinum og endurspeglast nú þegar í umbótaáætlun skólans. Á komandi skólaári verður því áfram lögð áhersla á að efla læsi og lestraráhuga nemenda, styrkja þátttöku þeirra í eigin námi og halda áfram markvissri vinnu að vellíðan og farsæld allra nemenda.
Við lítum á niðurstöðurnar sem mikilvægt verkfæri í áframhaldandi skólaþróun. Þær staðfesta styrkleika skólasamfélagsins en hjálpa okkur jafnframt að beina sjónum að þeim þáttum sem við viljum efla enn frekar.
