Frábærir vortónleikar

Við getum ekki annað en verið bæði pínku montin og stolt af nemendum okkar sem taka þátt í lúðrasveitarstarfi tónlistarskólans. 
Tónleikarnir voru hinir glæsilegustu og gaman að heyra og sjá hversu öruggir spilarar eru í öllum okkar fjórum lúðrasveitum. 
Stjórnandi lúðrasveitanna á tónleikunum var Martin Markvoll og lagaval var einstaklega skemmtilegt. 
Eftir tónleika var kökuhlaðborð en lúðrasveitirnar eru að safna sér fyrir Gautaborgarferð sem farin verður í júní. 
Til hamingju með flotta tónleika.