Formenn nemendaráðs

Kosning nemenda til nemendaráðs hefur farið fram.

Tvö teymi gáfu kost á sér til formennsku í nemendaráði og fengu frambjóðendur tækifæri til að kynna sig og helstu stefnumál sín fyrir nemendum á sal.
Að kynningum loknum gengu nemendur til kosninga og greiddu því teymi atkvæði sem þeir vildu fela formennsku í nemendaráðinu.

Niðurstaða kosningarinnar varð sú að Hákon Rúnar Hólmgeirsson og Jón Dagur Jónsson og munu þeir gegna hlutverki formanna nemendaráðs á skólaárinu.

Nemendaráð gegnir mikilvægu hlutverki í skólastarfinu og er vettvangur fyrir nemendur til að koma hugmyndum sínum og sjónarmiðum á framfæri og hafa áhrif á eigið skólasamfélag. Kosningin er því mikilvægur þáttur í því að efla nemendalýðræði og raddir nemenda innan skólans.

Við óskum nýjum formönnum til hamingju með kjörið og hlökkum til samstarfsins í vetur. Jafnframt þökkum við öllum frambjóðendum fyrir þátttökuna, góðar kynningar og viljann til að leggja sitt af mörkum fyrir skólasamfélagið.