Fimmtudaginn 1. október fór fram fyrsti fundur foreldrafélags á þessu skólaári.
Á fundinum var meðal annars kosið í hlutverk formanns og ritara félagsins. Gjaldkeri síðasta skólaárs bauð sig fram til áframhaldandi setu og mun því gegna hlutverki gjaldkera áfram.
Stjórn foreldrafélagsins skólaárið 2026–2027 er þannig skipuð:
Formaður: Sunna Guðný Högnadóttir
Ritari: Sigríður Silja Sigurjónsdóttir
Gjaldkeri: Berglind Þorbergsdóttir
Auk stjórnar taka foreldrafulltrúar bekkja virkan þátt í starfi félagsins og eru mikilvægur hlekkur milli foreldra, foreldrafélags og skóla.
Fulltrúar foreldra í Skóla- og fræðslunefnd verða þær Anna Lind Særúnardóttir og Dagbjörg Ýr Kiesel
Fulltrúar foreldra í skólaráði verða þau Hrafnkell Thorlacius og Elva Rún Óðinsdóttir
Foreldrafélagið er mikilvægur vettvangur foreldra og forsjáraðila til að taka virkan þátt í skólasamfélaginu. Tilgangur félagsins er meðal annars að efla samstarf og samskipti heimilis og skóla, styðja við velferð nemenda og stuðla að öflugu og jákvæðu skólasamfélagi.
Foreldrafélagið stendur jafnframt fyrir og styður við ýmis verkefni og viðburði sem efla samveru, tengsl og samfélagsanda meðal nemenda og fjölskyldna þeirra.
Við þökkum þeim sem gefa kost á sér til starfa fyrir foreldrafélagið og hlökkum til góðs samstarfs á skólaárinu.