Endurmenntun, rigning og góð samvera í London

Borgin tók á móti hópnum með kunnuglegu íslensku skítaveðri – töluverðri rigningu en þó örlítið meiri hlýindum en við eigum að venjast heima á þessum árstíma!

Fagleg dagskrá ferðarinnar var fjölbreytt og skiptist á tvo námskeiðsdaga.
Fyrri daginn eyddi hópurinn með John Morris á námskeiðinu Leading the Learning Journey through Formative Assessment. Þar var kafað ofan í leiðsagnarnám og hvernig við getum nýtt það enn betur til að styðja nemendur í námi og gera þá virkari þátttakendur í eigin námsferli.
John hefur um nokkurra ára skeið verið í öflugu samstarfi við skóla í Reykjavík. Stjórnendur GSS kynntust starfi hans á síðasta skólaári þegar þeir sóttu námskeið hjá honum í London og því var sérstaklega ánægjulegt að fá nú tækifæri til að taka stærri hóp starfsfólks með í þá vegferð.

Seinni námskeiðsdagurinn var í höndum Libbs frá Peacemakers undir yfirskriftinni Understanding Peace and Conflict. Þar var sjónum beint að samskiptum, ágreiningi og leiðum til að byggja upp jákvæð og friðsæl samskipti – viðfangsefni sem eiga sannarlega erindi inn í skólastarf.

Báðir námskeiðsdagarnir voru afar lærdómsríkir og hópurinn sneri heim með farteskið fullt af nýrri þekkingu, hugmyndum og verkfærum sem nýtast munu vel í áframhaldandi þróun skólastarfsins. En endurmenntunarferðir snúast ekki eingöngu um það sem gerist inni í námskeiðssalnum. Þær gefa starfsfólki líka dýrmætt tækifæri til að læra saman, ræða skólastarfið frá nýjum sjónarhornum og styrkja tengslin innan hópsins. Góð samvera, samtöl og hlátur eru nefnilega líka hluti af því að byggja upp öflugan vinnustað.

Við komum því heim úr London með aðeins þyngri ferðatöskur, fullt af nýrri þekkingu og hugmyndum – og enn sterkari hóp.