Það var sannkölluð gleðivika hjá nemendum á unglingastigi er stundatöflunni var kollvarpað og skemmtilegt uppbrot var á hverjum degi.
Vikuna enduðu svo nemendur á glæsilegu árshátíðarkvöldi. Árshátíðin var haldin í sal tónlistarskólans og eiga nemendur í nemendaráði og tækniráði skólans heiðurinn af allri umgjörðinni. Veislustjórar kvöldsins voru "gamlir" nemendur úr GSS þeir Bæring Nói og Flóki og stóðu þeir sig mjög vel.
Á árshátíðinni hefur skapast hefð fyrir því að hver bekkur sýnir myndband þar sem skólalífið er tekið fyrir á spaugilegan hátt, myndbönd nemenda eru vel unnin og metnaðarfull.
Síðasta skemmtiatriði kvöldsins var kveðja til 10.bekkjar frá kennurum og stuðningsfulltrúum á unglingastigi.
Nemendur dönsuðu svo til miðnættis og fóru allir heim bæði glaðir og svolítið þreyttir.
