Þann 23. mars héldu nemendur í 1.–6. bekk árshátíð sína með glæsibrag, en í fyrsta sinn fór hún fram í kirkjunni.
Fyrr um daginn var haldin generalprufa þar sem ömmum og öfum var boðið að njóta með okkur.
Á dagskránni var fjölbreytt og skemmtilegt efni, nemendur sungu af innlifun, fluttu leikrit, stigu á svið með uppistand og dönsuðu af gleði og sjálfstrausti. Hvert atriði bar með sér sköpunargleði, samvinnu og hugrekki, og það var augljóst að nemendur höfðu lagt mikið á sig við undirbúninginn.
Við erum afar stolt af þessum hæfileikaríku og flottu nemendum okkar sem stigu á svið með bros á vör og gleði í hjarta