Lausar stöður við Grunnskólann í Stykkishólmi

Lausar stöður við Grunnskólann í Stykkishólmi 
 
Stöður kennara frá 1. ágúst 2021 
 
80 - 100% ótímabundin staða á unglingastigi (stærðfræði, náttúrufræði, valgreinar) 
60 ? 80% ótímabundin staða í smíðakennslu  
60 ? 85% ótímabundin staða í heimilisfræði og sköpun  
 
Menntunar- og hæfniskröfur  
Leyfi til þess að nota starfsheitið kennari  
Leikni í mannlegum samskiptum og færni í að umgangast börn og unglinga 
Skipulagshæfni, stundvísi, frumkvæði og sjálfstæði  
Faglegur metnaður 
Áhugi og hæfni til að starfa í teymisvinnu 
Góðir samskiptahæfileikar  
 
Í Grunnskólanum í Stykkishólmi eru 150 nemendur. Gleði ? samvinna ? sjálfstæði eru einkunnarorð skólans og störfum við eftir Uppeldi til ábyrgðar. Umsækjendur þurfa að vera tilbúnir til að efla starfið enn frekar í þeim anda. Stykkishólmsbær eða ?Bærinn við eyjarnar? er 1200 manna bær á Snæfellsnesi með fallega náttúru og öflugt mannlíf. Í Stykkishólmi er vottað heilsueflandi vatn í sundlauginni. 
 
Láttu Hólminn heilla þig! 
 
Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningum Kennarasambands Íslands og Starfsmannafélag Dala- og Snæfellsness.  
 
Umsókn um stöðurnar skal fylgja skrá yfir menntun og starfsferil og afrit af leyfisbréfi, kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar með rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið og upplýsingar um umsagnaraðila. Fólk af öllum kynjum er hvatt til þess að sækja um. 
 
Umsóknir skulu sendar á berglind@stykk.is. Öllum umsóknum verður svarað. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Nánari upplýsingar um starfið veitir Berglind Axelsdóttir skólastjóri í síma 433-8178/895-3828 eða á netfangið berglind@stykk.is.  
 
Umsóknarfrestur er til og með þriðjudaginn 27. apríl 2021