Lausar stöður við Grunnskólann í Stykkishólmi

  

 

Lausar stöður við Grunnskólann í Stykkishólmi

 

Ein 100% staða stuðningsfulltrúa með langveiku barni frá7. september - vinnutími frá kl. 8:00 ? 16:00

Hæfniskröfur:

Aldurstakmark 20 ára

Áhugi á að vinna með börnum 

Menntun sem nýtist í starfi

Krafist er íslenskukunnáttu

Hæfni í mannlegum samskiptum

Tölvulæsi

 

50% staða forfallakennara fram að áramótum

 

Menntunar- og hæfniskröfur 

Leyfi til þess að nota starfsheitið kennari 

Leikni í mannlegum samskiptum og færni í að umgangast börn og unglinga

Skipulagshæfni, stundvísi, frumkvæði og sjálfstæði 

Faglegur metnaður

  

 

Í Grunnskólanum í Stykkishólmi eru 150 nemendur. Gleði ? samvinna ? sjálfstæðieru einkunnarorð skólans og störfum við eftir Uppeldi til ábyrgðar. Umsækjendur þurfa að vera tilbúnir til að efla starfið enn frekar í þeim anda. Stykkishólmsbær eða ?Bærinn við eyjarnar? er 1200 manna bær á Snæfellsnesi með fallega náttúru og öflugt mannlíf. Í Stykkishólmi er vottað heilsueflandi vatn í sundlauginni.

Láttu Hólminn heilla þig!

Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningum Kennarasambands Íslands og Starfsmannafélag Dala- og Snæfellsness. 

Umsókn um stöðurnar skal fylgja skrá yfir menntun og starfsferil og afrit af leyfisbréfi, kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar með rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið og upplýsingar um umsagnaraðila. Fólk af öllum kynjum er hvatt til þess að sækja um.

Umsóknir skulu sendar á berglind@stykk.is. Öllum umsóknum verður svarað. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Nánari upplýsingar um starfið veitir Berglind Axelsdóttir skólastjóri í síma 433-8178/895-3828 eða á netfangið berglind@stykk.is.

Umsóknarfrestur er til og með 5. september 2021