Lausar stöður við Grunnskólann í Stykkishólmi

  

 

Stöður kennara frá 1. ágúst 2022

 

90% staða í list-, verkgreinum og sköpun

50% staða forfallakennara

 

Menntunar- og hæfniskröfur 

  • Leyfi til þess að nota starfsheitið kennari 

  • Leikni í mannlegum samskiptum og færni í að umgangast börn og unglinga

  • Skipulagshæfni, stundvísi, frumkvæði og sjálfstæði 

  • Faglegur metnaður

  • Áhugi og hæfni til að starfa í teymisvinnu

  • Góðir samskiptahæfileikar

 

 

50% ótímabundin staða skólaliða í Regnbogalandi frá 15. ágúst - vinnutími frá kl. 12-16

100% ótímabundin staða skólaliða í þrifum og gæslu frá 1. ágúst

Tvær 75% tímabundnar stöður stuðningsfulltrúa frá 15. ágúst - vinnutími frá kl. 8-12

 

Hæfniskröfur:

  • Aldurstakmark 20 ára

  • Áhugi á að vinna með börnum 

  • Menntun sem nýtist í starfi

  • Krafist er íslenskukunnáttu

  • Hæfni í mannlegum samskiptum

  • Tölvulæsi

 

Í Grunnskólanum í Stykkishólmi eru 155 nemendur. Gleði ? samvinna ? sjálfstæði eru einkunnarorð skólans. Unnið er að innleiðingu leiðsagnarmats og þurfa umsækjendur þurfa að vera tilbúnir til að efla starfið enn frekar í þeim anda. Stykkishólmsbær eða ?Bærinn við eyjarnar? er 1200 manna bær á Snæfellsnesi með fallega náttúru og öflugt mannlíf. Í Stykkishólmi er vottað heilsueflandi vatn í sundlauginni.

  

Láttu Hólminn heilla þig!

  

Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningum Kennarasambands Íslands og Starfsmannafélag Dala- og Snæfellsness. 

  

Umsókn um stöðurnar skal fylgja skrá yfir menntun og starfsferil og afrit af leyfisbréfi, kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar með rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið og upplýsingar um umsagnaraðila. Fólk af öllum kynjum er hvatt til þess að sækja um.

  

Umsóknir skulu sendar á berglind@stykk.is. Öllum umsóknum verður svarað. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Nánari upplýsingar um starfið veitir Berglind Axelsdóttir skólastjóri í síma 433-8178/895-3828 eða á netfangið berglind@stykk.is.

   

Umsóknarfrestur er til og með 30. maí 2022