Lausar kennararstöður 2023-2024

Lausar kennararstöður 2023-2024

Tvær 100% stöður umsjónarkennara

50% ótímabundin staða í textíl

70% ótímabundin staða í snillismiðju

50% ótímabundin staða í heimilisfræði

70% ótímabundin staða í upplýsingatækni

50% staða forfallakennara

 

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leyfi til þess að nota starfsheitið grunnskólakennari
  • Leikni í mannlegum samskiptum og færni í að umgangast börn og unglinga
  • Skipulagshæfni, stundvísi, frumkvæði, framtakssemi og sjálfstæði
  • Faglegur metnaður
  • Áhugi og hæfni til að starfa í teymisvinnu

 

Í Grunnskólanum í Stykkishólmi eru 170 nemendur. Gleðisamvinnasjálfstæði eru einkunnarorð skólans. Eftirfarandi eru áherslur skólans: Byrjendalæsi, leiðsagnarnám, upplýsingatækni og teymiskennsla. Umsækjendur þurfa að vera tilbúnir til að efla starfið enn frekar í þeim anda.

Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningum Kennarasambands Íslands og Starfsmannafélag Dala- og Snæfellsness.

Umsókn um stöðurnar skal fylgja skrá yfir menntun og starfsferil og afrit af leyfisbréfi, kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar með rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið og upplýsingar um umsagnaraðila. Fólk af öllum kynjum er hvatt til þess að sækja um.

Umsóknir skulu sendar á berglind@stykk.is. Öllum umsóknum verður svarað. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Nánari upplýsingar um starfið veitir Berglind Axelsdóttir skólastjóri í síma 433-8178/895-3828 eða á netfangið berglind@stykk.is.

Umsóknarfrestur er til og með 30. mars 2023