Laus staða við Grunnskólann í Stykkishólmi

70% staða íslenskukennara frá 1. ágúst 2022

Menntunar- og hæfniskröfur 

  • Leyfi til þess að nota starfsheitið kennari 

  • Leikni í mannlegum samskiptum og færni í að umgangast börn og unglinga

  • Skipulagshæfni, stundvísi, frumkvæði og sjálfstæði 

  • Faglegur metnaður

  • Áhugi og hæfni til að starfa í teymisvinnu

  • Góðir samskiptahæfileikar

  • Reynsla af íslenskukennslu á unglingastigi

  •   

Umsókn um stöðuna skal fylgja skrá yfir menntun og starfsferil og afrit af leyfisbréfi, kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar með rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið og upplýsingar um umsagnaraðila. Fólk af öllum kynjum er hvatt til þess að sækja um.

  

Umsóknir skulu sendar á berglind@stykk.is. Öllum umsóknum verður svarað. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Nánari upplýsingar um starfið veitir Berglind Axelsdóttir skólastjóri í síma 433-8178/895-3828 eða á netfangið berglind@stykk.is.

   

Umsóknarfrestur er til og með 12. maí 2022