Hönnunarkeppnin Stíll

Hönnunarkeppnin Stíll fór fram í íþrótthúsinu Digranesi laugardaginn 1. febrúar. Í ár skráðu sig til leiks hópur frá Stykkishólmi þau Helga María Elvarsdóttir, Birgitta Mjöll Magnúsdóttir, Sara Jónsdóttir, Jóhanna María Ægisdóttir, Metúsalem Páll Sigurbjargarson með stuðningi frá starfsmanni félagsmiðstöðvar Guðbjörgu Halldórsdóttur og grunnskólans Kristbjörgu Hermannsdóttur. Mikil vinna fór í undirbúning og var afraksturinn glæsilegur.

Í ár fagnaði keppnin 20 ára afmæli en þessi frábæri viðburð var fyrst haldinn árið 2000 í Kópavogi. Á Stíl koma saman og keppa unglingar af öllu landinu í fatahönnun, hárgreiðslu, förðun, framkomu og hönnunarmöppu. Þemað sem valið er að Ungmennaráði Samfés var í ár ?DISNEY?.

Ungt fólk af öllu landinu tekur þátt og er gaman að segja frá því að Stíll er valáfangi í mörgum grunnskólum landsins í samstarfi við félagsmiðstöðvarnar. Markmið Stíls eru m.a. að hvetja ungt fólk til listsköpunar og um leið gefa þeim aukin tækifæri til frumlegrar hugsunar og sköpunarhæfileika.

Fyrir keppnina voru tónlistaratriði en þá stigu á svið þeir Davíð Svanur Halldórsson og Hjörtur Sigurðsson úr félagsmiðstöðinni Afdrep Snæfellsbæ en þeir voru sigurvegarar Rímnaflæði Samfés 2019, rappkeppni unga fólksins með laginu ?Leiðinlegir dagar.

Hjartanlega til hamingju Snæfellingar með frambærilegt listafólk, framtíðin björt í listum fyrir Snæfellinga.