Afmælishátíð - Opið hús

Skólahald í Stykkishólmi á sér langa söngu. Fyrsta skólahúsnæðið var byggt 1896 en þá hófst formlegur rekstur barnaskóla í Stykkishólmi.
Fyrsta skólahúsið varð fljótlega of lítið fyrir skólastarfið og árið 1910 var íbúðarhús Guðmundar Eggerz sýslumanns keypt fyrir skólahús en húsið varð svo eldsvoða að bráð og var þá tekin ákvörðun um að byggja nýtt skólahús á sömu lóð og það gamla, á hæðinni á Skólastíg.
Nýja skólahúsið átti að vera sniðið að kröfum skólahalds þess tíma. Barnaskólinn í Stykkishólmi var tekinn í notkun árið 1935 en leikfimissalurinn reis síðan og kennsla hófst í honum árið 1947. Árið 1986 var skólahúsnæðið við Borgarbraut vígt og haustið 2009 færðist allt skólahald þangað en skólahúsnæðið á Skólastíg hýsir starf Tónlistarskólans.

 

Þriðjudaginn 24.febrúar bjóða nemendur og starfsfólk GSS bæjarbúum í heimsókn til okkar og hvetjum við fyrrum kennara og starfsmenn sérstaklega til þess að koma. 
Formenn nemendaráðs taka á móti gestum og segja nokkur orð um skólastarfið okkar og í framhaldinu eru gestir hvattir til þess að heimsækja bekkjarstofur og taka þátt í fjölbreyttri verkefnavinnu, skoða kennslurými og spjalla við nemendur, kennara, stuðningsfulltrúa og annað starfsfólk skólans. 
Boðið verður upp á afmæliskökur og kaffi. 

Hlökkum til þess að sjá ykkur öll