Skólasókn

Skólasókn nemenda kemur fram á vitnisburðablaði þeirra á vorin í formi bókstafseinkunnar.

               

Í upphafi hvers skólaárs hefja nemendur árið með fullnægjandi skólasókn. Seinkoma, fjarvist í kennslustund eða brottvikning telja allt til stigaskráningar. Leyfi og veikindi eru skráð í dögum en teljast ekki til einkunnar skólasóknar.

  • Seinkoma telur 1 stig
  • Fjarvist telur 2 stig
  • Brottvikning úr tíma telur 2 stig

Tilgangur þess að vinna að reglum um ástundun nemenda er til að fyrirbyggja óþarfa fjarvistir, skólaforðun og þá auknu tilhneigingu að minnkandi skólasókn sé samfélagslega samþykkt í formi fjölda leyfisdaga á skólatíma. Skólasókn nemenda er ávallt á ábyrgð foreldra og ber starfsfólki ekki skylda til að þjónusta einstaka nemendur sérstaklega vegna fjarvista frá skóla. Verum samstíga og vinnum að því að jafna stöðu nemenda með góðri skólasókn.