- Fréttir
- Þjónusta
- Myndir
- Íbúagátt
- Starfsfólk
- Viðburðir
- Fundargerðir
- Stagley
Nemendur í 7. bekk stigu nýverið á svið og buðu gestum upp á vandaðan og fallegan upplestur sem liður í undirbúningi fyrir Stóru upplestrarkeppnina á Snæfellsnesi.
Upplesturinn var liður í markvissri þjálfun nemenda þar sem áhersla er lögð á framsögn, tjáningu, framkomu og öryggi á sviði. Nemendur sýndu mikla einbeitingu og metnað og var greinilegt að þau höfðu lagt sig fram við æfingar.
Að loknum upplestri voru þrír nemendur valdir til að vera fulltrúar skólans í keppninni á Snæfellsnesi, það voru þau:
Arney Lilja Atladóttir, Diljá Líf Káradóttir og Reynir Axel Hjaltalín
Við óskum þeim innilega til hamingju og hlökkum til að fylgjast með þeim taka þátt í þessu skemmtilega verkefni.
Við erum afar stolt af öllum 7. bekkingum sem tóku þátt – þau eru skólanum til mikils sóma.
Stóra upplestrarkeppnin á Snæfellsnesi verður svo haldin 05. mars í Ólafsvík