Afmælisveisla & opið hús

Það var sannkölluð hátíðarstemmning á opnu húsi okkar og afmælisveislu í tilefni af skólastarfi í Stykkishólmi.
Fjölmenni lagði leið sína til okkar og það var einstaklega ánægjulegt að sjá fyrrum nemendur og starfsfólk, foreldra og aðra velunnara skólastarfsins koma saman. 
Formenn nemendaráðs þeir Þorvarður Daníel og Hóseas Haukur, tóku á móti gestum og sögðu frá skólastarfinu og buðu svo öllum upp á afmælisköku, kaffi og djús. 
Á meðan gestir gæddu sér á kökunni rifjuðu þeir upp góðar minningar þegar þeir skoðuð gamlar myndir og muni úr skólastarfinu. Jafnframt voru fjölbreytt og glæsileg verkefni nemenda frá þessu skólaári til sýnis.
Opið var inn í kennslustundir og kennslurými og voru allir velkomnir að kíkja í heimsókn í bekkjarstofur, fylgjast með starfinu og upplifa daglegt líf skólans.
Það er gaman að geta opnað dyrnar og gefið innsýn í það öfluga starf sem unnið er á hverjum degi. 

Þessi dagur minnti okku á hversu dýrmætt það er að eiga skóla sem sameinar fólk, vekur stolt og byggir upp framíðina, saman. 

Við þökkum öllum þeim sem komu til okkar og tóku þátt í deginum með okkur