Lausar stöður við Grunnskólann í Stykkishólmi

 

50% ótímabundin staða skólaliða í Regnbogalandi frá 15. ágúst - vinnutími frá kl. 12-16

100% ótímabundin staða skólaliða í þrifum og gæslu frá 1. ágúst - vinnutími frá kl. 8 - 16

75% tímabundin staða stuðningsfulltrúa frá 15. ágúst - vinnutími frá kl. 8-14

 

Hæfniskröfur:

  

  • Aldurstakmark 20 ára

  • Áhugi á að vinna með börnum

  • Menntun sem nýtist í starfi

  • Krafist er íslenskukunnáttu

  • Hæfni í mannlegum samskiptum

  • Tölvulæsi

 

Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningum Starfsmannafélag Dala- og Snæfellsness. 

Umsókn um stöðurnar skal fylgja skrá yfir menntun og starfsferil og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar með rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið og upplýsingar um umsagnaraðila. Fólk af öllum kynjum er hvatt til þess að sækja um.

  

Umsóknir skulu sendar á berglind@stykk.is. Öllum umsóknum verður svarað. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Nánari upplýsingar um starfið veitir Berglind Axelsdóttir skólastjóri í síma 433-8178/895-3828 eða á netfangið berglind@stykk.is.

   

Umsóknarfrestur er til og með 12. ágúst 2022