Helgileikur

Hinn árlegi helgileikur 3. bekkjar fór fram í Stykkishólmskirkju í morgun. Séra Gunnar Eiríkur Hauksson stýrði atburðinum sem er samstarfsverkefni grunn-, tónlistar- og leikskóla Stykkishólmsbæjar. Nemendur úr tónlistarskólanum sáu um tónlistarflutning og elstu nemendur leikskólans sungu.