Frá Grunnskólanum í Stykkishólmi

 

Laus staða við Grunnskólann í Stykkishólmi

 

       50% tímabundin staða forfallakennara

      Menntunar- og hæfniskröfur 

  • Leyfi til þess að nota starfsheitið kennari 

  • Viðbótarmenntun er kostur

  • Leikni í mannlegum samskiptum og færni í að umgangast börn og unglinga

  • Skipulagshæfni, stundvísi, frumkvæðiframtakssemi og sjálfstæði 

  • Faglegur metnaður

  • Áhugi og hæfni til að starfa í teymisvinnu

 

Það er kosturviðkomandigetihafiðstörfsemfyrstogtreystisértilkennasemflestfög á semflestumstigum.

 

Í Grunnskólanum í Stykkishólmi eru 150 nemendur. Gleði ? samvinna ? sjálfstæði eru einkunnarorð skólans og störfum við eftir Uppeldi til ábyrgðar. Umsækjendur þurfa að vera tilbúnir til að efla starfið enn frekar í þeim anda. Stykkishólmsbær eða ?Bærinn við eyjarnar? er 1200 manna bær á Snæfellsnesi með fallega náttúru og öflugt mannlíf. Í Stykkishólmi er vottað heilsueflandi vatn í sundlauginni.

 

Láttu Hólminn heilla þig!

 

Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningum Kennarasambands Íslands og Starfsmannafélag Dala- og Snæfellsness. 

  

Umsókn um stöðurnar skal fylgja skrá yfir menntun og starfsferil og afrit af leyfisbréfi, kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar með rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið og upplýsingar um umsagnaraðila. Fólk af öllum kynjum er hvatt til þess að sækja um.

 

Umsóknir skulu sendar á berglind@stykk.is. Öllum umsóknum verður svarað. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Nánari upplýsingar um starfið veitir Berglind Axelsdóttir skólastjóri í síma 433-8178/895-3828 eða á netfangið berglind@stykk.is.

 

Umsóknarfrestur er til og með 30. október 2020