Frá Grunnskólanum í Stykkishólmi
Laus staða við Grunnskólann í Stykkishólmi
50% tímabundin staða forfallakennara
Menntunar- og hæfniskröfur
-
Leyfi til þess að nota starfsheitið kennari
-
Viðbótarmenntun er kostur
-
Leikni í mannlegum samskiptum og færni í að umgangast börn og unglinga
-
Skipulagshæfni, stundvísi, frumkvæði, framtakssemi og sjálfstæði
-
Faglegur metnaður
-
Áhugi og hæfni til að starfa í teymisvinnu
Það er kosturaðviðkomandigetihafiðstörfsemfyrstogtreystisértilaðkennasemflestfög á semflestumstigum.
Í Grunnskólanum í Stykkishólmi eru 150 nemendur. Gleði – samvinna – sjálfstæði eru einkunnarorð skólans og störfum við eftir Uppeldi til ábyrgðar. Umsækjendur þurfa að vera tilbúnir til að efla starfið enn frekar í þeim anda. Stykkishólmsbær eða „Bærinn við eyjarnar“ er 1200 manna bær á Snæfellsnesi með fallega náttúru og öflugt mannlíf. Í Stykkishólmi er vottað heilsueflandi vatn í sundlauginni.
Láttu Hólminn heilla þig!
Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningum Kennarasambands Íslands og Starfsmannafélag Dala- og Snæfellsness.
Umsókn um stöðurnar skal fylgja skrá yfir menntun og starfsferil og afrit af leyfisbréfi, kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar með rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið og upplýsingar um umsagnaraðila. Fólk af öllum kynjum er hvatt til þess að sækja um.
Umsóknir skulu sendar á berglind@stykk.is. Öllum umsóknum verður svarað. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Nánari upplýsingar um starfið veitir Berglind Axelsdóttir skólastjóri í síma 433-8178/895-3828 eða á netfangið berglind@stykk.is.
Umsóknarfrestur er til og með 30. október 2020